Þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi

Við erum hér fyrir þig

Hjá Sigurhæðum færð þú stuðning, ráðgjöf og meðferð á þínum eigin forsendum.
Við tökum á móti konum 18 ára og eldri í öruggu og hlýju umhverfi, þar sem þú getur fengið einstaklings- eða hópmeðferð, áfallameðferð og ráðgjöf frá sérfræðingum, lögreglu og lögfræðingum. Við bjóðum einnig upp á fræðslu um réttindi innflytjendakvenna og tryggjum túlkaþjónustu þegar þess er þörf.
Þér og aðstandendum þínum er alltaf velkomið að hafa samband, hringja eða bóka viðtal til að fá stuðning og upplýsingar.

Þjónustan okkar

Við bjóðum upp á fjölbreyttan stuðning fyrir konur 18 ára og eldri, í öruggu og hlýju umhverfi. Þú getur valið það sem þér hentar, hvort sem þú vilt ræða við einhvern í trúnaði, fá lagalega ráðgjöf eða taka þátt í hópastarfi.

Hvernig fer ferlið fram?

Að leita sér aðstoðar getur verið stórt skref og viljum við að þú vitir nákvæmlega hvað bíður þín. Ferlið er einfalt, hlýlegt og á þínum eigin forsendum.

Þú stjórnar ferðinni.

Við mætum þér af virðingu, trúnaði og hlýju á öllum stigum.

  • Þú getur haft samband með því að hringja, senda fyrirspurn eða bóka viðtal hér á síðunni. Við svörum eins fljótt og við getum og ræðum næstu skref með þér.

  • Í fyrsta viðtalinu hittir þú ráðgjafa í rólegu og öruggu umhverfi. Við hlustum á þig, kynnum möguleika og leitum saman leiða sem henta þínum aðstæðum.

  • Saman mótum við áætlun út frá þínum þörfum - hvort sem það er einstaklingsmeðferð, hópastarf, lagaleg ráðgjöf eða annað úrræði.

  • Þú færð þann stuðning sem þú þarft, á þínum hraða. Við fylgjum þér eftir, styðjum þig í gegnum ferlið og tryggjum að þú standir ekki ein.

Hvað er ofbeldi?

Ofbeldi getur birst á marga mismunandi vegu og er því ekki alltaf auðvelt að átta sig á því.
Hjá Sigurhæðum færð þú stuðning óháð því hvers konar ofbeldi þú hefur orðið fyrir.

Komdu til okkar

Að leita sér aðstoðar á að vera einfalt og öruggt. Þú getur komið til okkar, hringt eða sent fyrirspurn.

Heimilisfang: Fagurgerði 2, Selfossi

Opnunartímar: Þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 09 - 18

Símanúmer: 834-5566

Netfang: sigur@sigurhaedir.is

 

Vertu hluti af stuðningsnetinu okkar

Með því að bjóða okkur upp á kaffibolla styður þú við starfsemi Sigurhæða og hjálpar okkur að halda áfram að veita konum öruggt og nærandi rými.